Fjáraukalagafrumvarp 2002, 1. umræða
Lagagreinar og athugasemdir
 

13 Hagstofa Íslands

Lagt er til að fjárheimild Hagstofu Íslands verði aukin um 137,5 m.kr.

101 Hagstofa Íslands, aðalskrifstofa.
1.01 Yfirstjórn. Farið er fram á 54 m.kr. fjárveitingu. Með lögum nr. 51/2002 var Þjóðhagsstofnun lögð niður þann 1. júlí sl. og verkefni þau sem hún sinnti flutt til fjármálaráðuneytisins og Hagstofu Íslands. Vegna þessa er í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2003 lögð til 100 m.kr. hækkun fjárveitingar til Hagstofu Íslands og 44,1 m.kr. hækkun fjárveitingar til fjármálaráðuneytisins. Í samræmi við framangreint er hér lagt til að fjárveiting til Hagstofunnar hækki um 50 m.kr. auk þess sem samsvarandi tillaga um 22 m.kr. hækkun fjárveitingar er gerð hjá fjármálaráðuneyti. Á móti fellur niður helmingur fjárveitingar Þjóðhagsstofnunar árið 2002 hjá forsætisráðuneytinu. Einnig er óskað eftir 4 m.kr. fjárveitingu til húsaleigu og reksturs á nýju húsnæði Hagstofu Íslands. Hagstofan fær afhent nýtt leiguhúsnæði að Borgartúni 21A í byrjun desember. Húsaleiga í einn mánuð er 3,4 m.kr. fyrir utan rekstrarkostnað.
6.01 Tæki og búnaður. Farið er fram á 62,5 m.kr. fjárveitingu til kaupa á ýmsum búnaði í nýtt húsnæði sem Hagstofan fær afhent í byrjun desember næstkomandi. Kostnaður við tölvulagnir og -tengingar ásamt símkerfi og öryggiskerfum er áætlaður 29 m.kr., kostnaður við kaup á ýmsum húsbúnaði, innréttingum og tækjum er talinn vera 22 m.kr., nýjar vinnustöðvar fyrir fyrrverandi starfsmenn Þjóðhagsstofnunar kosta 6 m.kr. og ófyrirséður kostnaður er 5,5 m.kr.
6.21 Húsnæði. Farið er fram á 21 m.kr. fjárveitingu vegna kostnaðar við flutning, ýmsan frágang og breytingar sem gera þarf innanhúss á nýju húsnæði Hagstofu Íslands til að húsnæðið nýtist betur og falli vel að þörfum Hagstofunnar.